Færsluflokkur: Reynslusögur

Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar okkur skjátlaðist, viðurkenndum við það undanbragðalaust

10. sporið: Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar okkur skjátlaðist, viðurkenndum við það undanbragðalaust.  

Á kvöldin áður en ég sofna ligg ég og reyni að muna hvað ég hef gert, sagt og hugsað þann daginn. Ég finn alltaf ýmislegt sem ég vildi óska að ég hefði ekki gert, vissi að var rangt en gerði samt.

Ég skoða betur það sem mér þótti verst og næsta dag reyni ég að forðast að það endurtaki sig. Ég einbeiti mér bara að því að gera þetta ekki aftur. Næsta kvöld bæti ég við einu eða tveimur atriðum og þannig held ég áfram. 


Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust, þar sem því var við komið, svo fremi það særði engan.

9. sporið: Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust, þar sem því var við komið, svo fremi það særði engan.  

* Í mjög langan tíma komst ég upp með að vinna ekki í þessu spori því það myndi skaða mig –það myndi særa sjálfstraust mitt að biðjast fyrirgefningar og bæta fyrir brotin, svo að ég sleppti því. En að lokum varð ég heiðarleg. Nú veit ég að ef ég bæti fyrir brotin gagnvart einhverjum mun hinn sami sennilega hafa meira álit á mér og mér mun líða miklu betur í samskiptum við hann.  

* Oft og mörgum sinnum hef ég freistast til að forðast þau vandræði sem fylgja því að biðjast fyrirgefningar milliliðalaust og því valið að bæta fyrir brotið á óbeinan hátt. Ég verð að vera viss um tilgang minn áður en ég ákveð hvernig ég ætla að bæta fyrir brot mitt. Ég spyr mig hvort ég forðist að biðjast fyrirgefningar af því að það sé betra fyrir mig eða af því að það sé í raun og veru betra fyrir hinn aðilann að ég geri það á einhvern annan hátt.


Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust, þar sem því var við komið, svo fremi það særði engan.

9. sporið: Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust, þar sem því var við komið, svo fremi það særði engan.  

* Í mjög langan tíma komst ég upp með að vinna ekki í þessu spori því það myndi skaða mig –það myndi særa sjálfstraust mitt að biðjast fyrirgefningar og bæta fyrir brotin, svo að ég sleppti því. En að lokum varð ég heiðarleg. Nú veit ég að ef ég bæti fyrir brotin gagnvart einhverjum mun hinn sami sennilega hafa meira álit á mér og mér mun líða miklu betur í samskiptum við hann.  

* Oft og mörgum sinnum hef ég freistast til að forðast þau vandræði sem fylgja því að biðjast fyrirgefningar milliliðalaust og því valið að bæta fyrir brotið á óbeinan hátt. Ég verð að vera viss um tilgang minn áður en ég ákveð hvernig ég ætla að bæta fyrir brot mitt. Ég spyr mig hvort ég forðist að biðjast fyrirgefningar af því að það sé betra fyrir mig eða af því að það sé í raun og veru betra fyrir hinn aðilann að ég geri það á einhvern annan hátt.


8. sporið: Við gerðum lista yfir alla þá sem við höfðum skaðað og urðum fús til að bæta fyrir brot okkar.

8. sporið: Við gerðum lista yfir alla þá sem við höfðum skaðað og urðum fús til að bæta fyrir brot okkar.  

Það er mikilvægt fyrir mig að búa til lista yfir það fólk sem ég hef sært svo að ég sjái greinilega hvaða hegðun gerði mér meira vont en gott. Ég var best í því að koma með alls konar afsakanir fyrir slæmri hegðun minni. Ég afsakaði mig með því að ég væri bara mannleg eða reyndi að skella skuldinni á aðra.  

Ég var í námi og vildi komast í dýrari skóla en fékk ekki inngöngu og það hafði slæm áhrif á sjálfsálitið. Ég fór í fýlu og taldi mér trú um að eina ástæðan væri sú að mamma og pabbi væru ekki nógu efnuð til að senda mig þangað. Ég var fjölskyldunni mjög erfið. Ef ég hefði ekki rifjað þennan atburð upp annað hvort í huganum eða með því að skrifa hann niður getur verið að ég hefði haldið áfram að trúa afsökunum mínum.

Ég særði ekki aðeins foreldra mína heldur sjálfa mig líka. Það forðar mér frá að gera sömu mistökin aftur að ég var fús til að opna hug minn og hjarta og bæta fyrir þetta brot og önnur.


7. sporið: Við báðum Guð í auðmýkt að losa okkur við brestina

7. sporið: Við báðum guð í auðmýkt að fjarlægja brestina. 

Ég trúi því að guð muni losa mig við brestina með því að gefa mér tækifæri til að vinna í sjálfri mér. Til dæmis er ég mjög skapstór, en síðan ég varð meðvituð um þennan galla þá virðist sem ég taki oftar eftir því þegar ég er að missa stjórn á skapi mínu.

Ég hef talað við fólk og lært hvernig það fer að því að stjórna sínu skapi. Ég trúi því að þessi nýja vitund um mig sjálfa sé aðferð guðs til að hjálpa mér. 


6. sporið: Við vorum þess albúin að láta guð fjarlægja alla okkar skapgerðarbresti.

6. sporið: Við vorum þess albúin að láta guð fjarlægja alla okkar skapgerðarbresti.   

* Ég hélt að ég væri reiðubúin  til að vinna þetta spor af því að ég var svo löt. Ég nennti ekki að losa mig sjálf við bresti mína. Ég var sátt við að láta einhvern annan gera það. Ég bjóst við að ég þyrfti bara að segja: ,,Jæja guð, nú tekur þú við“ og þá væru þeir horfnir næsta dag. En þetta var nú ekki alveg svona einfalt.  

* Önnur góð tilfinning fylgdi sjötta sporinu, þegar ég var loksins fús til að guð losaði mig við skapgerðarbresti mína. Fyrst vildi ég halda nokkrum eftir, en ég vissi að ég yrði að láta þá alla af hendi til æðri máttar.

Þegar ég gerði það létti mér stórkostlega. 


5. sporið : Við viðurkenndum afdráttarlaust fyrir guði, sjálfum okkur og öðrum einstaklingi yfirsjónir okkar.

5. sporið: Við viðurkenndum afdráttarlaust fyrir guði, sjálfum okkur og öðrum einstaklingi yfirsjónir okkar.

Reynslusögur:  

Tilfinningin sem fimmta sporið gaf mér var stórkostleg. Mér fannst í raun og veru eins og andi alheimsins og ég leiddumst á göngu minni. Í fyrsta skipti í lífi mínu sá ég sjálfa mig sem heilbrigða manneskju sem var sett saman úr góðu og slæmu. Ég vissi hver ástæðan var fyrir sumu af því sem ég hafði gert. Ég vissi hver tilgangur minn var og nákvæmlega hvers eðlis vandamál mín voru.


4. sporið Við gerðum óttalaus og siðferðisleg reikningsskil í lífi okkar

4. sporið: Við gerðum óttalaust nákvæman siðferðislegan lista yfir skapgerðareinkenni okkar. 

 Reynslusögur: 

Það fyrsta sem raunverulega hjálpaði mér var að gera reikningsskil í lífi mínu. Ég gerði það með því hugarfari að hjálpa sjálfum mér. Vá, maður! Allt sem ég fann var hræðilegt. Ég fann hvergi neitt gott! Þá gerði ég mér grein fyrir því að ég ætti að byrja að vinna í sjálfum mér í stað þess að gagnrýna aðra eins og ég hafði áður gert.  ,,Við gerðum óttalaust nákvæman siðferðislegan lista yfir skapgerðareinkenni okkar.

“ Rækileg og óttalaus?

Ég hef áreiðanlega skrifað þrjár blaðsíður af því sem mér gekk vel með. Allir mínir dásamlegu eiginleikar. En þegar ég kom að göllunum fann ég enga. Þegar ég kom að níunda atriðinu fór ég að skoða sjálfa mig fyrir alvöru. Ég fann að það væri möguleiki, já það gæti ef til vill verið að ég hefði einhvern smá galla.  Því meira sem ég hugsaði um það því betur gerði ég mér grein fyrir því að gallar mínir væru nokkuð margir. Og þeir voru stórir og ljótir. Þetta tók sinn tíma.

Sannleikurinn var sársaukafullur. En að lokum viðurkenndi ég þá staðreynd að ég hefði marga galla sem ég þurfti að losa mig við. Ég gerði rækileg og óttalaus reikningsskil í lífi mínu og í þetta sinn skrifaði ég galla á heilar þrjár blaðsíður. Þegar ég fór að vinna fjórða sporið, gerði ég það vegna tilfinninga minna í garð föður míns.

Ég var mjög reið vegna þess sem hann hafði gert móður minni, mér og allri fjölskyldunni. Það var erfitt fyrir mig að yfirvinna reiðina og raunverulega langaði mig ekki til þess. En að lokum tókst mér að losa mig við alla reiði í hans garð. 

 


3. sporið: Við tókum þá ákvörðun að láta vilja okkar og líf lúta handleiðslu guðs, samkvæmt skilningi okkar á honum.

3. sporið: Við tókum þá ákvörðun að láta vilja okkar og líf lúta handleiðslu guðs, samkvæmt skilningi okkar á honum.   

Reynslusögur:   

Ég þekkti engan æðri mátt þegar ég kom í Alateen. Fyrir mig eru síðustu orðin í þessu spori mikilvægust - ,,guðs, samkvæmt skilningi okkar á honum “. Ég trúi á guð á minn hátt og eins og ég held að hann vilji að ég trúi.  Þetta hefur hjálpað mér mjög mikið af því ég aðhyllist engin ein trúarbrögð. 

Þetta spor hjálpaði mér að taka ákvörðun, eitthvað sem ég átti erfitt með áður en ég kom í Alateen. Ég varð að vera fús til að vinna og mæta mínum æðra mætti á miðri leið. Það er bara sanngjarnt – þetta er mitt líf sem ég hef áhyggur af.  

Þegar ég ákveð hvernig ég vil að hlutirnir fari er það minn vilji, þegar ég fæ ekki vilja mínum framgengt, lít ég á það sem vilja míns æðri máttar. Ég reyni að muna að vandamálið sem blasir við mér er aldrei eins stórt og sá æðri máttur sem stendur að baki mér.

 


2. sporið: Við fórum að trúa að máttur, okkur æðri, gæti gert okkur andlega heil að nýju.

2. sporið: Við fórum að trúa að máttur, okkur æðri, gæti gert okkur andlega heil að nýju.

Reynslusögur um sporin :  

Ég trúi því að það sé eitthvað mér æðra og að þaðan geti ég fengið innblástur til að láta mér þykja vænt um aðra. Ég hef þroskast nógu mikið til að líta á minn æðri mátt sem vin sem ég get talað við og þessi vinátta hjálpar mér til að létta á hjarta mínu við hann. Ég get slakað á og komið skipulagi á huga minn. Þá verður hugsunin skýr og ég get tekið þær ákvarðanir sem þarf að taka á hverjum degi. 

Áður fyrr, gerði munurinn á guði í trúarlegum skilningi og guði í andlegum skilningi mig alveg ringlaðan. Það virtist sem ég fengi ekki eins mikið út úr því að fara í kirkju og ég fékk út úr Alateen fundunum. Ég held að það sé vegna þess að í kirkjunni var predikað yfir mér og mér sagt hvað ég ætti að hugsa.

Í Alateen gat ég sjálfur tekið ákvörðun.

Nú er ég ekki eins dómharður og ég er líka farinn að skilja hvað er verið að tala um í kirkjunni.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband