30 einkenni fíknar
17.10.2010 | 13:11
- Hefur barnið þitt verið úti alla nóttina án leyfis? ( áður en þú segir ,,það gera allir krakkar, þau gera það nefnilega ekki öll.
- Hefur þú fundið hluti í herbergi hans/hennar, sem ekki eiga þar heima ?
- Er barnið undarlegt til augnanna þegar það kemur heim?
- Er barnið augljóslega í vímu þegar það kemur heim?
- Hefur barnið meitt systkini sín?
- Hefur barnið hagað sér ósæmilega á opinberum samkomum þar sem önnur börn haga sér vel ?
- Hefur yfirkennari eða skólastjóri hringt til þín vegna sonar þíns eða dóttur ?
- Hefur honum/henni verið vísað úr skóla ?
- Eru einkunnir barnsins verri en í fyrra ?
- Skrópar hann/hún ?
- Er barnið hætt að taka þátt í íþróttum eða skólastarfi sem það hafði ánægju af áður fyrr? Fer hann ekki á fótboltaæfingar eins og áður ? er hún hætt í danstíma.
- Hefur klæðnaður barnsins breyst, jafnvel þegar miðað er við klæðaburð félaganna?
- Er barnið hætt að vinna húsverkin sín af áhuga ? er afsökunin ,,Ég þarf að skreppa út?
- Hittir barnið vini sína oft á skólalóðinni eftir skóla? Skólalóðir grunn og framhaldsskóla eru kjörinn sölu og neyslustaður á kvöldin og um helgar. Foreldrarnir eru að vonum ánægð með að séu á skólalóðinni með félögunum en ekki á Hlemmi í óreglu. Auðvitað viljum við trúa börnunum okkar. En þetta er ekki spurning um siðferði, það er við erfiðan sjúkdóm að eiga.
- Talar barnið um frábær teiti, vikur og mánuði frammí tímann ? ( Ég get ekki beðið eftir að verða tvítug/ur og komast og komast í Ríkið! Þá er sko hægt að detta í það! ) þegar þú minnist á einhvern sem hefur hætt að drekka, segir barnið þá ,, En hvað með kampavín á Gamlárskvöld ? og þetta er um jónsmessuleytið.
- hefur barnið einhverju sinni stært sig af að hafa drukkið alla undir borðið ?
- notar barnið orðið partý sem sagnorð fremur en nafnorð? (t.d. ef dóttir þín er að fara í veislu, ræðir hún þá almennt um veisluna, frekar en fólkið sem verður þar? )
- vill barnið gista oft hjá vinum sínum? Er mömmu Siggu sama þó þær fái sér bjór? Var þér sagt að mamma Siggu yrði heima, en hún var það ekki ? Aðgættu allar staðreyndir.
- finnur þú tómar bjór og brennivínsflöskur undir rúmi barnsins?
- hangir barnið þitt í verslunarmiðstöðvum ? Er áfengisútsala þar ? Kaupa unglingarnir áfengi þar eða fá þau einhvern fullorðin til að kaupa fyrir sig ?
- hefur vinahópur barnsins augljóslega breyst ?
- hverfa lyfin úr lyfjaskápnum smátt og smátt ? Lyfjaskápurinn er ein helsta vímuefnauppspretta barna og unglinga.
- er áfengið á heimilinu ( ef þú átt vín ) útþynnt? Hafa gestir þínir einhvern tímann minnst á ,,óvenjulega léttar blöndur þegar þú hefur blandað eins og venjulega ?
- fer barnið undan flæmingi þegar þú spyrð einhvers ?
- hverfa peningar ú seðlaveskinu þínu ? Úr sparibaukum á heimilinu ?
- endast vasapeningarnir aldrei út vikuna ? Fer sumarhýran jafnhraðan ? Er alltaf verið að biðja um aukafjárveitingar ?
- hverfa hlutir af heimilinu ?
- hefur unglingurinn verið tekinn af lögreglu vegna ölvunar við akstur ?
- hefur þú einhvern tíma íhugað að leita sérfræðiaðstoðar vegna hegðunar barnsins/unglingsins ?
- hefur hann/hún einhvern tíma talað um sjálfsvíg, eða reynt að svipta sig lífi ?
Flokkur: forvarnir og fræðsla | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.