Af hverju byrjar ungt fólk að nota áfengi eða fíkniefni ?
29.10.2010 | 13:38
Af hverju byrjar ungt fólk að nota áfengi eða fíkniefni ?
,,Mér leið illa í skólanum , varð fyrir einelti og kveið fyrir hverjum degi"
,,Mér varð bara rétt pípa í partýi og ég prufaði ",,Mér var sagt að hass hefði róandi áhrif á mann"
,,Fannst það ,,cool
,,Vildi bara vera eins og eldri krakkar
,,Veit það ekki ,vildi vera með ,,,Var í hópi með eldri krökkum og "
,,Ætli það hafi ekki bara verið einhver þrýstingur
,,það var svo töff
Þetta eru svör nokkurra unglinga sem voru í meðferð til þess að hætta neyslu á vímuefnum 2003.Víst er að sú barátta verður löng og erfið og skilur eftir sig ör alla ævi. Öll neyttu þau fíkniefna í fyrsta skipti í heimahúsi hjá ,,kunningja og stóðu venjulega frammi fyrir því að þurfa að taka ákvörðun um það fyrirvaralaust um hvort þau ætluðu að prófa. Öll féllu þau á þessu prófi.
Þau áttu það öll sameiginlegt að þau eyddu litlum tíma með foreldrum sínum á unglingsárunum......Að vera í góðum tengslum við barnið er eitt það mikilvægasta sem foreldrar geta lagt af mörkum til að hjálpa barninu sínu að forðast neyslu á áfengi og fíkniefnum..
Leitaðu aðstoðar ef grunsemdir vakna, það er styrkur , ekki veikleiki
Flokkur: forvarnir og fræðsla | Breytt s.d. kl. 13:43 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.